HUGVITSSAMLEGT HYBRID-RAFMAGNSAFL Nýr Corolla byggist á ríkri arfleifð nýsköpunar og tæknilegra framfara hjá Toyota og skilar akstursupplifun sem einkennist af óviðjafnanlegri skilvirkni og lipurð í akstri. Fimmta kynslóð Hybrid-rafmagnsaflrásarinnar er hljóðlátari, minni um sig og viðbragðsbetri en nokkru sinni fyrr, með litlum útblæstri og miklu togi sem skilar áreynslulausri hröðun. Bíllinn er einfaldur í notkun, með Normal-, Eco- og Power-akstursstillingum, og sameinar óþreytandi afköst bensínvélarinnar og hreint og kraftmikið rafdrif. Sjálfhlaðandi Corolla Hybrid býður einnig upp á rafmagnsstillingu sem skilar sér í afslöppuðum akstri án útblásturs þegar þú kýst það. SNJALLARI AKSTUR MEÐ HYBRID-ÞJÁLFUN Lærðu að aka á sparneytnari máta með innbyggðri Hybrid-þjálfun í Corolla. Hybrid-trygging Toyota gerir þér síðan kleift að vinna þér inn fríðindi fyrir kílómetra sem þú ekur á rafmagni eingöngu. 4
Halið niður PDF-skjali