RAFMÖGNUÐ AFKÖST. ENGINN ÚTBLÁSTUR. Proace City Verso Electric sameinar fjölbreytileika Proace City Verso og skilvirkni rafknúinnar, útblásturslausrar aflrásar. Með Proace City Verso Electric færðu hámarkssveigjanleika í borgarakstri, hvort sem þú ferjar mikilvæga viðskiptavini eða fjölskylduna. Hvort sem þú ert að snattast innanbæjar eða fara út úr bænum nýturðu fullkominna þæginda undir stýri allan daginn, í hljóðlátu innanrými og allt að 275 km drægni. Proace City Verso-Electric býður upp á góða hröðun og hagkvæman rekstrarkostnað í flokki sambærilegra bíla, þökk sé hljóðláta 136 DIN hö./100 kW rafmótornum og öflugu 50 kWh litíum-jóna-rafhlöðunni. Rafknúna aflrásin sparar fyrirtækinu þínu rekstrarkostnað auk þess að minnka kolefnissporið. Fylgstu með hleðslu rafhlöðunnar og orkunotkun á TFT upplýsingaskjánum og vertu klár í hverja ferð, hvert sem förinni er heitið. KOSTIR PROACE CITY VERSO ELECTRIC LÍTILL REKSTRARKOSTNAÐUR Lækkaðu eldsneytiskostnað, skattaálögur og viðhaldskostnað til muna. Proace City Verso Electric sparar þér fé í hverri beygju. ENGINN ÚTBLÁSTUR Ferðastu um borgina og njóttu þess að hafa hljóðláta og útblásturslausa aflrás, framúrskarandi vélarafl og kost á því að borga lægri stöðumælagjöld. ALLT AÐ 280 KM DRÆGNI * Þú treystir þér til að fara hvert sem er, þökk sé frábærri drægni. HRAÐHLEÐSLA Vertu með allt á hreinu í öllum ferðum. Á hraðhleðslustöðvum geturðu hlaðið rafhlöðuna í 80% hleðslu á 30 mínútum. * Byggt á útreikningum úr WLTP-prófun. 4
Halið niður PDF-skjali