Spurningar? Get ég þvegið bílinn með háþrýstidælu? Já, Toyota ProTect þolir háþrýstiþvott. Get ég notað bílaþvottastöðvar? Já, ProTect þolir að fara í gegnum allar hefðbundnar bílaþvottastöðvar. Má handþvo og bóna bílinn? Já, ProTect þolir vel hreinsiefni og vaxbón en ekki mössun. Hvaða sápu á ég að nota á bílinn? ProTect þolir allar góðar bílasápur. Hvað þarf að hafa í huga? Toyota ProTect er fyrst og fremst öflug vörn fyrir yfirborð og innra byrði ökutækisins. ProTect kemur ekki í veg fyrir rispur eða dældir en lakkið þolir betur að lenda í slíkum barningi. Eins er vert að hafa í huga að það er erfiðara að viðhalda sumum litum en öðrum. Hvað þarf að varast með ProTect? • Gætið þess að þurrka af ef þvegið er með heitu vatni því að annars geta myndast blettir. • ProTect kemur ekki í veg fyrir grjótbarning á vegum úti. • ProTect fer af við mössun. • ProTect getur rispast en hlífir lakki. • Trjásafi og fugladrit getur skemmt lakkvörnina og þarf því að hreinsa af bílnum sem fyrst. ÍSLENSKA/SIA.IS/TOY 84145 04/17 Vörn á bílinn að utan sem innan Ytra byrði Að utan myndar ProTect harðan glerhjúp um ökutækið sem ver lakk og hliðarglugga gegn veðri, mengun og öðrum ytri álagsþáttum. Varnarhúðin binst sameindum í lakkinu og endist því lengur en sambærileg efni. Innra rými Innra rými bílsins heldur sér betur með vörn sem hrindir frá sér óhrein- indum og auðveldar þrif. Með ProTect eru minni líkur á því að blettir myndist í innréttingum, teppum og öðrum tauáklæðum. Efnið hentar sérlega vel í bílum sem þurfa að þola mikið álag frá degi til dags. ProTect er hins vegar ekki notað á leðuráklæði. Lakkið heldur gjáa sínum lengur Toyota ProTect lakkvörnin dregur úr rispumyndun og viðheldur uppruna- legum lit og gljáa bílalakksins. Auk þess sem auðveldara verður að þrífa bílinn að utan. Toyota ábyrgist að upphaflegur gljái lakksins endist í allt að 5 ár miðað við eðlilegt viðhald og þrif á yfirbyggingu bílsins. Vörn fyrir álfelgur Toyota ProTect hefur sambærilegar lausnir til að verja dýrmætar álfelgur gegn hemlaryki og veðrun. Líkt og með lakkvörnina þá auðveldar ProTect þrifin á álfelgunum, dregur úr rispum og viðheldur gljáa þeirra lengur. - Einstök vörn á dýrmætar álfelgur - Góð vörn gegn hemlaryki - Auðveldar þrif á felgum
Halið niður PDF-skjali