Skýrsla og áritun Klappa grænna lausna hf. Klappir grænar lausnir hf., (Klappir) hafa aðstoðað við gerð sjálfbærniuppgjörs fyrir Toyota á Íslandi ehf. (Toyota). Sjálfbærniuppgjörið hefur að geyma helstu upplýsingar um umhverfisþætti, félagslega þætti og stjórnarhætti Toyota. Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á sjálfbærniuppgjörinu Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ófjárhagslegra upplýsinga, þ.m.t. upplýsingar um umhverfisþætti, samfélagsþætti, og stjórnarhætti, samkvæmt 66. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006. Staðfesting Klappa Við höfum skipulagt og hagað vinnu okkar í samræmi við meginreglur Greenhouse Gas Protocol aðferðafræðinnar sem kveða á um að framsetning upplýsinga um losun gróðurhúsalofttegunda verði að vera lýsandi, nákvæm, heilleg, samræmd og gagnsæ. Einnig hefur vinnunni verið hagað í samræmi við UNGC, Nasdaq ESG, SDG og GRI en tenging við þessa staðla er dregin fram í uppgjörinu. Þar að auki hefur verið horft til væntanlegs Evrópustaðals, Draft ESRS E-1 Climate Change. Ég staðfesti hér með, með undirskrift minni, að þau gögn Toyota sem birt eru í sjálfbærniuppgjöri þessu vegna tímabilsins 1. janúar 2022 - 31. desember 2022, hafa verið yfirfarin og metin af sjálfbærnisérfræðingum Klappa eftir bestu vitund. Gögn tengd félagslegum þáttum og stjórnarháttum voru ekki yfirfarin af Klöppum. Klappir bera ekki ábyrgð á fjárfestingarákvörðunum sem teknar eru á grundvelli þeirra upplýsinga sem hér birtast. Sjálfbærniuppgjörið {fyrirtæki: ef.} er rafrænt undirritað af Klöppum grænum lausnum hf. Klappir grænar lausnir hf. 3
Halið niður PDF-skjali