Skýrsla og áritun Klappir grænar lausnir hf., (Klappir) hafa aðstoðað við gerð sjálfbærniuppgjörs fyrir Toyota á Íslandi ehf. Sjálfbærniuppgjörið hefur að geyma helstu upplýsingar um umhverfisþætti, félagslega þætti og stjórnarhætti. Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á sjálfbærniuppgjörinu Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu ófjárhagslegra upplýsinga, þ.m.t. upplýsingar um umhverfisþætti, samfélagsþætti, og stjórnarhætti, samkvæmt 66. gr. laga um ársreikninga nr. 3/2006. Staðfesting Klappa Við höfum skipulagt og hagað vinnu okkar í samræmi við meginreglur Greenhouse Gas Protocol aðferðafræðinnar sem kveða á um að framsetning upplýsinga um losun gróðurhúsalofttegunda verði að vera lýsandi, nákvæm, heilleg, samræmd og gagnsæ. Einnig hefur vinnunni verið hagað í samræmi við UNGC, Nasdaq ESG, SDG og GRI en tenging við þessa staðla er dregin fram í uppgjörinu. Þar að auki hefur verið horft til væntanlegs Evrópustaðals, Draft ESRS E-1 Climate Change. Ég staðfesti hér með, með undirskrift minni, að þau gögn Toyota á Íslandi ehf. sem birt eru í sjálfbærniuppgjöri þessu vegna tímabilsins 01.janúar 2024 - 31. desember 2024, hafa verið yfirfarin og metin af sjálfbærnisérfræðingum Klappa eftir bestu vitund. Gögn tengd félagslegum þáttum og stjórnarháttum voru ekki yfirfarin af Klöppum. Klappir bera ekki ábyrgð á fjárfestingarákvörðunum sem teknar eru á grundvelli þeirra upplýsinga sem hér birtast. Klappir grænar lausnir hf. 16-04-2025 Jón Ágúst Þorsteinsson, Forstjóri Sjálfbærniuppgjör Toyota á Íslandi ehf. er rafrænt undirritað af Klöppum grænum lausnum hf. Klappir grænar lausnir hf. Document Ref: E6DSY-SLWJS-VSSPD-FW2FC 4 Page 4 of 18
Halið niður PDF-skjali