Áritun vottunaraðila Vottunaraðili: Jón Ágúst Þorsteinsson Vinnsluaðili: Sigríður Ragna Sverrisdóttir Gagnasérfræðingur: Höskuldur Arason Við höfum aðstoðað við gerð umhverfisuppgjörs Toyota á Íslandi ehf. kt. 5301710279 fyrir árið 2019. Uppgjörið byggist á þeim upplýsingum sem umhverfishugbúnaður félagsins hefur safnað saman yfir árið og hefur að geyma allar helstu upplýsingar um umhverfisþætti félagsins. Við höfum skipulagt og hagað okkar vinnu í samræmi við leiðbeiningar Nasdaq frá 2019 og meginreglur Greenhouse Gas Protocol aðferðafræðinnar (Relevance, Accuracy, Completeness, Consistency, Transparency). Klappir EnviroMaster safnar gögnum eins örugglega frá upprunastað gagna og núverandi tækni leyfir. Losun gróðurhúsalofttegunda, sem birt er fyrir allar fyrrnefndar eignir, er reiknuð í tCO2í og birt í umhverfisuppgjöri þessu. Ég staðfesti hér með, með undirskrift minni, að þau gögn Toyota á Íslandi og birgja þess sem birt eru í umhverfisuppgjöri þessu fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember, hafa verið yfirfarin og metin eftir bestu vitund. Reykjavík, 25.mars 2020 ___________________________________________ Dr. Jón Ágúst Þorsteinsson, Klappir grænar lausnir hf. 3
Halið niður PDF-skjali