Umhve r fisuppgjör Verkefnastjóri: Selja Ósk Snorradóttir Umhverfisuppgjör Toyota á Íslandi ehf. fyrir árið 2021 er gert í samræmi við ESG leiðbeiningar sem Nasdaq á Íslandi og Norðurlöndunum gáfu út á árinu 2019. Þessar leiðbeiningar eru byggðar á tillögum sem settar voru fram árið 2015 af Sameinuðu þjóðunum, Samtökum um sjálfbærar kauphallir (Sustainable Stock Exchange Initiative) og vinnuhópi hjá Alþjóðasamtökum kauphalla (World Federation of Exchange). Einnig er vísað í tilheyrandi viðmið GRI Standard (e. Global Reporting Initiative, GRI100-400) og meginviðmið (e. Reporting Principles, P1-10) alþjóðasáttmála Sameinuðu þjóðanna (United Nations Global Compact, UNGC). Klappir hafa aðstoðað við gerð umhverfisuppgjörsins, sem byggist á þeim upplýsingum sem Klappir hugbúnaðurinn hefur safnað saman yfir árið. Umhverfisuppgjörið hefur að geyma allar helstu upplýsingar um umhverfisþætti Toyota á Íslandi. Klappir skipuleggja og haga vinnu sinni í samræmi við meginreglur Greenhouse Gas Protocol aðferðafræðinnar: Viðeigandi, nákvæmni, heilleiki, samræmi og gagnsæi. Gögn Toyota á Íslandi eru yfirfarin og metin eftir bestu vitund og nákvæmustu upplýsingum hverju sinni, að undanskildum gögnum tengdum félagslegum þáttum og stjórnarháttum. Klappir bera ekki ábyrgð á fjárfestingarákvörðunum sem teknar eru á grundvelli þeirra upplýsinga sem hér birtast. 1 5 . mars 2022, Reykjavík Dr. Jón Ágúst Þorsteinsson forstjóri, Klappir Klappir grænar lausnir hf. 3
Halið niður PDF-skjali