loftpúðar; rafrænn sviss; rafliðar; hitaelement í rúðum; stjórntölva (aksturstölva); rúðulyftibúnaður og mótorar; stjórnrofi fyrir rúðulyftibúnað; færslumótorar fyrir baksýnisspegla; fjarstýringar í lyklum; hreyfar í rafdrifnum læsingum (læsingamótorar og segulspólur); loftpúðaskynjarar; fjarlæsingarstjórntölva; tímaliði fyrir innilýsingu; mælar; klukkur; hraðamælir og hraðaskynjari; snúningshraðamælir; leiðslukaplar (fyrir skammhlaup); færslumótorar í sætum; vindlingakveikjarar; skynjarar; hitaelement í sætum; þjófavarnarkerfi (aðeins frá Toyota); færslumótorar í aðalljósum; kertaleiðslur; endurforritun stjórntölva og hugbúnaðar (nema þegar aðeins á að eyða bilanakóða). • Yfirbygging : Þakgluggi/sóllúga (aðeins frá Toyota); færslumótorar fyrir þakglugga/sóllúgu (aðeins frá Toyota); hurðalæsingar; barki í vélarhlífaropnun; hlerastög; þurrkubraket; sætisfærslur; öryggisbeltabúnaður; aukahlutir frá verksmiðju; og Toyota aukahlutir sem eru uppsettir af viðurkenndum þjónustuaðila svo lengi sem þeim hefur verið hlaðið upp í CWS af hálfu Toyota á Íslandi innan þriggja mánaða frá skráningu ökutækis. • Hybrid íhlutir (þegar 5 ár og/eða 100.000 verksmiðjuábyrgð er liðin) : S tjórntölva drifrafhlöðu, stjórntölva Hybridkerfis og umriðill Hybridkerfis. • Íhlutir efnarafalskerfis : Loftdæla efnarafals, spennubreytir efnarafals, vetnisgeymar, aflstjórnbúnaður vetniskerfis og efnarafall. • Rafmagnsíhlutir : Drifmótor og umriðill fyrir drifmótor. 4. Ábyrgðin nær ekki yfir viðgerðarkostnað ef: • Varahluturinn er ekki á listanum yfir tryggða varahluti í grein 3 hér að ofan. • Hann er til kominn vegna slits, mikils hlaups, hávaða og/eða titrings. • Ökutækinu hefur ekki verið haldið við eða gert við það samkvæmt ráðleggingum framleiðanda; þetta ákvæði tekur gildi við skráningu ökutækisins. • Hann er til kominn vegna galla sem ekki voru tilkynntir tafarlaust til viðurkennds þjónustuaðila Toyota eða viðurkenndur þjónustuaðili Toyota hefur á annan máta ekki fengið til tækifæri til að gera við. • Hann er til kominn vegna viðgerða sem ekki voru framkvæmdar af viðurkenndum þjónustuaðila Toyota. • Hann er til kominn vegna galla sem rekja má til annarrar notkunar ökutækisins en framleiðandi ráðleggur (svo sem misnotkunar, spyrnu; utanvegaaksturs, breytinga, ofhleðslu). • Hann er til kominn vegna ytri orsaka og/eða náttúrufyrirbæra (svo sem vatnsleka og ryks, grjótskemmda, flóða, ísingar, illviðris, náttúruhamfara, slysa, elds, sprenginga, stríðs, óeirða, aðgerða yfirvalda, aðgerða af ásettu ráði eða í fjandsamlegum tilgangi, notkunar í leyfisleysi, saltsmengunar, glertæringar og rispa, óhreininda). • Hann er til kominn vegna galla sem ekki eru af völdum Toyota. • Hann er til kominn vegna skemmda vegna aukahluta eða sérstaks búnaðar sem ekki er frá Toyota.
Halið niður PDF-skjali