• Hann er til kominn vegna vanrækslu af ásettu ráði eða vítaverðs gáleysis (þar með talið en ekki takmarkað við óviðeigandi smurefni og eldsneyti). • Hann er til kominn vegna breytinga á upprunalegri hönnun ökutækisins eða uppsetningar tiltekinna aukahluta sem gera það að verkum að ökutækið uppfyllir ekki lengur lágmarkskröfur sem framleiðandinn setur. • Hann er til kominn vegna varahluta sem settir hafa verið í ökutækið sem ekki eru af sömu gæðum og upprunalegir varahlutir frá framleiðanda. • Hann er til kominn vegna rangrar festingar hjóla, rangra viðgerða eða óviðeigandi skipta á einstökum íhlutum. • Hann er afleiðing rangrar uppsetningar; eða er til kominn vegna notkunar hlutar sem greinilega þarfnast viðgerðar, nema hægt sé að sýna fram á að skemmdin tengist viðkomandi hlut ekki. Ábyrgðin nær ekki yfir kostnað vegna: • Óbeins kostnaðar á borð við hagnaðar- eða tekjutap hjá eiganda ökutækis; flutning; drátt; síma; gistingu; leigu; eignatjón eða glötuð verðmæti. • Útlitstengdra atriða á borð við lakkviðgerðir; ryðviðgerðir; óeðlilegan lit; upplitun; aflögun; sprungur; hluta sem losna; hluta sem detta af; vatnsleka- og rakaskemmdir. • Bíla sem ekki eru fluttir inn af Toyota á Íslandi ehf. • Hluti sem tengjast Toyota Relax ábyrgð og sem gert var athugasemd við í þjónustuskoðun, en þeir ekki lagfærðir. 5. Eftirfarandi varahlutir og íhlutir falla ekki undir ábyrgðina: • Viðhaldshlutir (t.d. varahlutir sem þarf að skipta um reglulega, síur, hemla- klossar, borðar; skór og barkar, kúplingsdiskar, kúplingshlíf og kúplingslegur), felgur, hjólbarðar, kílreimar, rafgeymar, vökvar, kerti, bilanagreining. • Gúmmíhlutir (t.d. gúmmislöngur (miðstöð), leiðslur og rör, vélar- eða yfirbyggingarfestingar, skrautlistar, þurrkublöð), drifskaftshosur, höggdeyfar (þ.m.t. loftstrokkar) og fjaðrir, fóðringar á jafnvægisstöng, hlutir fyrir fljótandi jarðolíugas/eldsneytiskerfi frá öðrum en framleiðanda og beinar og afleiddar skemmdir vegna þeirra (einnig vegna breytinga á kerfi frá framleiðanda til að nota fljótandi jarðolíugas eða eldsneytiskerfi frá öðrum en framleiðanda). • Yfirbygging og lakk (t.d. ljós, kastarar, perur, linsur, borð, stuðarar, gler, króm, loftnet, handföng og áklæði, skraut að utan, þéttikantar, gljáandi málmlakk (málmhlutar án húðunar), viðgerðir vegna tæringar að því gefnu að almenn ábyrgð vegna tæringar sé ekki í gildi. • Innanrými (t.d. áklæði, sætishlífar, púðar, teppi, loftræstingarristar, öskubakkar, hnappur á gírstöng, mælaborð, stýri). • Margmiðlunarkerfi. • Hybrid rafgeymir.
Halið niður PDF-skjali